Það er svo undarlegt að vilja ekki einu sinni vita hvernig esb samningur gæti hljóðað
Það er svo undarlegt að vilja ekki einu sinni vita hvernig esb samningur gæti hljóðað
Það er svo áhugavert þegar man býr í (semí) litlu sveitarfélagi og það byrjar að styttast í kosningar og man sér hvaða fólk er á hvaða listum. Hvað ertu að meina að X er sjalli og Y í framsókn? Þetta breytir sýn minni á fullt af fólki 😆
Við erum að lesa Hungurleikana fyrir krakkana og shit hvað þetta er góð bók
Mig líka!
Þó það sé langt síðan ég heimsótti þig þá get ég staðfest!
Pantaði mér 2 brjóstahaldara og þeir passa báðir.
#winning
Það er fátt sem ég er minna hissa á en að Ólafur og Dorrit séu í Epstein skjölunum.
Það er kolniðamyrkur kl 8 líka 😆
En já ég á erfitt með að sjá fyrir mér aðstæður þar sem mér þætti þetta ganga upp.
Ég veit ekki, ef mín gætu vaknað og græjað sig og komið sér og til baka tímanlega fyrir skólann þá kannski bara jájá.
En það eru bara ekki margar æfingar staðsettar þannig. Mín æfa sund og þau færu aldrei á morgunsundæfingar án þess að þurfa skutl fram og til baka og það ætti ég bátt með.
Að mínu mati er vandamálið að karlar/feður gera þetta ekki líka.
Ég er á milli atvinna. Er á uppsagnarfresti í fyrri vinnu (án kröfu um vinnuframlag) en komin með nýja vinnu sem ég byrja ekki strax í.
Og ég kann ekki að slaka samviskubitslaust á. En mikið hef ég gott af þessu!
Ég elska svona vetrarveður 😊 snjókoma, svolítill vindur. Engin stórhríð (elska reyndar stórhríð líka) en bara rosa "förum í sund og fáum okkur svo heitt kakó" veður 🌨
Hvar var þetta veður um jólin?
Ég styð alveg að þetta sé regulate-að og bara náð einhver stjórn á þessu. Mín ást er ekki réttlæting á þessu sko! Bara absolutely ekki.
En ég elska samt þegar allt er að springa á áramótunum. Þetta gefur mér eitthvert sensory overload euphoria.
En þó ég elsketta þá er það ekki réttlæting f. þetta
Ég skil svo vel hrædda hunda, hesta osfr. Hata mengunina osfr osfr.
En shit hvað ég fokking elska samt flugelda 🙈
Til hamingju með hana 😊
Sko ég skil það því að það er það sem samfélagið hefur kennt henni að gera frá upphafi. Ég mun ævinlega vera þakklát foreldrum mínum fyrir að hafa passað upp á að afmælið mitt væri afmæli en ekki bara enn eitt leiðinlegt verk í desember. Því að þetta er virkilega notalegur afmælistími ❤️
Takk 😊
Takk!
Takk! Og hamingjuóskir á móti 🥂
Takk 😊
Ég á afmæli í dag 🥳
Það er algeng mýta að það sé ömurlegt að eiga afmæli í desember en ég hreinlega get ekki ímyndað mér betri tíma til þess.
Fólk er afslappað eftir jólin, engin þurfa að mæta í skóla og bara örfá í vinnu.
Ég held að milli jóla og nýárs sé besti tíminn fyrir afmæli ❤️❤️❤️
Hér var þorláksmessufiskur í raspi (ýsa, ekki skata)
Og sko planið er graflax ca. Kl 15 ish, svo opna pakka, svo hrygg ca kl 18 og svo opna meiri pakka og svo ís ca 20ish og spil og rólegheit eftir það.
Já við byrjum jólin snemma því að við ráðum OG börnunum líður betur að fara á skikkanlegum tíma að sofa.
Ég er alin upp við að hafa hamborgarhrygg en börnin mín eru ekkert hrifin af honum. Það eina sem skiptir máli er að það sé graflax, stundum höfum við bara haft graflax í forrétt og svo ís í eftirrétt en núna ákváðum við saman að hafa líka lambahrygg í aðalrétt.
Og ég nenni ekki einu sinni að telja upp alla krakkana mína 🙈😂
Takk
Takk
Takk
Takk
Takk, já það stefnir í bara mega afslöppun 😊