Einhvern daginn þá ætla ég að fara ein til útlanda og hafa það súper næs ein með sjálfri mér.
Einhvern daginn þá ætla ég að fara ein til útlanda og hafa það súper næs ein með sjálfri mér.
Börnin mín hafa ekki gist hjá hinu foreldri sínu í mörg ár. Þá sjaldan sem ég er "barnlaus" þá held ég alltaf að ég muni gera eitthvað geðveikt klikkað og finna mikinn mun... en svo er lífið bara ósköp venjulegt eitthvað 😅
Ég ætlaði ekki að spila þennan leik í dag eftir bullið í gær en lét til leiðast.
Þetta er svo allt of mikið áreiti af þessum endalausu km gjalds tilkynningum. Ég skil ekki af hverju þessu má ekki troða öllu í eitt skjal.
Orðin sem ég er með fyrir ofan #99 tengjast ekki mat. En ég kemst ekki ofar en #18.
Sama hér... búin með yfir 200 gisk og ég er mjög hissa að sjá kakó í topp 100. Ég held að orðið sé einhver tóm steypa í dag.
Ég var svo tilbúin að sleppa nánast alveg við snjó í vetur. Nú bíð ég spennt eftir því hvort rigningarspáin rætist.
Það eru margir fyrrverandi nemendur að tjá sig í skoðanapistlum á Vísi þessa dagana. Og eflaust er ég að missa af einhverju á Facebook
Ég skil ekki þetta latínudrama. Það eru innan við 10 einstaklingar á þessari námsbraut skv fréttum. Það er ansi mikil sóun á opinberu fé að halda því úti.
Tollurinn er eiginlega alveg hættur að eltast við fólk út af svona málum. Gætir haft afrit af kvittunum í símanum en það er orðið langt síðan maður hætti að heyra sögur af þeim gramsa í eigum fólks til þess eins að reyna að bösta það fyrir eyðslu eins og þeir gerðu.
Ég fann dagatal með hænum. Það kom til landsins í vikunni 🐔
Það er samt uþb ár síðan viðtölin voru tekin svo þetta er ekki eitthvað sem var hent saman í flýti.
Ég var að horfa á fyrstu tvo þættina af America's Next Top Model heimildarmyndinni á Netflix og allir eru bara "æj já... ég bar sko alls ekki ábyrgð á þessum part".
Það er alltaf stóra spurningin, fyrir hvern er fólk að búa til efni sem það nennir ekki sjálft að leggja neitt á sig til að búa það til? Ekki nenni ég að eyða mínum tíma í það
Er þetta eitthvað félag utan um þennan eina mann? Ég hef grun um að hann ofmeti vinsældir sínar eitthvað.
Af hverju er markmiðið einhver óskýr samkeppni við önnur lönd en ekki sjálfstætt markmið um hvert við viljum stefna í málaflokknum?
Ahhh, uppáhaldið mitt. Fólk sem býr ekki í Reykjavík og vill það ekki en þykist vita mest um hvað Reykjavík er fyrir bestu.
Og af hverju er ekki spurt hvað felst í þessum "flutningi" hans í dag? Var hann að flytja eða flytja heimilisfangið sitt einhvert þar sem hann mun ekki búa?
lol. Svo miðflokkurinn ætlar að bjóða Reykvíkingum upp á gæja sem er með lögheimili erlendis og á hús í Garðabæ?
Að horfa á gaura renna sér á sleða er ekkert sérstaklega sjónvarpsvænt efni. Má ég þá frekar biðja um krullu.
Ég er þessi týpa, sorrý fyrir hönd okkar allra 😔
Ég gæti ekki farið í framboð fyrir sveitarstjórnarkosningar af því að ég get ekki hugsað mér að mæta á þorrablót eins og virðist vera skylda miðað við fjölmiðla.
Hann er til, ég sendi þér skilaboð 🙂
Pabbi minn er starfsmaður þar til 40 ára og fagnörd fyrir allan peninginn. Ég er nokkuð viss um að hann gæti svarað þér.
Ég reyndi það og hann bilaði mjög fljótlega svo ég lét það vera mitt merki um að halda bara áfram að nota pott.
Nexus hafa selt mér hænudagatal síðustu fjögur ár en nú gerðist það að ég fann ekki hænudagatal fyrir 2026. Ég er einhvernvegin alveg miður mín og get ekki sætt mig við neitt annað en dagatal með hænum.
Gott að sjá að lögreglan er ekki að eyða of mikilli orku í að elta vindmyllur.
Það er ekkert einfalt við að fara þessa leið. Þoli ekki þegar það er talað á þann hátt.
Ein stærstu mistök verkalýðshreyfingarinnar var að gera langa samninga í hárri verðbólgu. Nú sitjum við uppi með verðbólgu langt umfram launahækkanir.
Svo er skömm að opinber gjöld orsaki þessa miklu hækkun verðbólgu núna.
Ég hafði alveg gaman af því að horfa á myndina en það vantar ýmislegt upp á. Ég hlæ t.d. þegar ég heyri fólk tala um hana sem hryllingsmynd því mér fannst hún alls ekki vera það. Meira supernatural.