Sonurinn tekinn við: Sagður eiga milljarða og lúxuseignir um allan heim - DV share.google/YlGfmIEuw047...
Ólíkt Trump?
Sonurinn tekinn við: Sagður eiga milljarða og lúxuseignir um allan heim - DV share.google/YlGfmIEuw047...
Ólíkt Trump?
Hann má svo sannarlega bulla hvað sem er, það er samt óþarfi af fjölmiðlum að lepja það upp gagnrýnislaust.
Ég hef alltaf skilið þetta sem einfalt, sá sem er kýrskýr er einfaldur og það sem er kýrskýrt er einfalt.
Diskur af pasta carbonara með parmesan yfir.
Þú ert mér innblástur.
En vel að merkja ein flottasta kápa sem ég hef séð.
Appelsínugul kápa með stílíseraðri svartri mynd af nauti.
Bók 9, Glæsir eftir Ármann Jakobsson. Söguleg skáldsaga, armasta bókmenntagreinin, endursögn á Eyrbyggjasögu sem minningum Þórólfs bægifótar afturgengnum sem naut. Bætir engu við og er tilgangslaus. Ef þú hefur ekkert nýtt að skrifa er betra að sleppa því en að endurskrifa aðra sögu. Engin stjarna.
Mig dreymir blauta drauma um að losna undan íslensku krónunni, vöxtunum og verðtryggingunni.
Aldrei gera í dag það sem má fresta á morgun.
Ég held reyndar að vel flest sem segjast ekki kunna latínu kunni meira en þau halda.
Og öll nema Gurney með voðalega fína titla. Nú veldur Kluarcsom mér vonbrigðum.
Miðað við fjölmiðlaumfjöllunina virðist vera gríðarlega sterkt latínulobbí á Íslandi.
Í ljósi þessa mislingafaraldurs í Bandaríkjunum, þarf ekki að setja bann á komu ferðamanna þaðan til Íslands, eða a.m.k. bólusetningarskyldu?
Ég hef ekki lesið\hlustað á viðtalið við Margréti Löv og mun ekki gera. Mér finnst ekki sniðugt að taka viðtöl við morðingja nema í rannsóknarskyni, en ég skil alveg tilhneigingu fjölmiðla til að gera það. Mér fyndist samt eðlilegra að bíða með slíkt þangað til þeir eru búnir að afplána.
Einni málsgrein?
Kápan af When the Moon Hits Your Eye eftir John Scalzi. Geimfari stendur á því sem virðist vera tungl úr osti og tekur sjálfu með svartan stjörnumskrýddan himin í baksýn.
Tunglið, tunglið 🌙 taktu mig. Bók 8 á árinu er When the Moon hits your eye eftir John Scalzi. Hvað gerist þegar tunglið breytist skyndilega í ost? Stórkostleg saga sem gerist á einum tunglmánuði. Tær snilld. Fjórar og hálf stjarna. ⭐⭐⭐⭐💫
www.dv.is/frettir/2026...
Er ekki Morgunblaðið hakkavél Samherja?
Fyrir utan að það voru nú fyrst og fremst RÚV og aðrir fjölmiðlar sem voru í hakkinu þarna.
Botnaðu þetta?
heimildin.is/grein/26019/...
Gat báðar myndaspurningarnar, en bara 8 af hinum.
Ég er saklaus, byrjaði á Tango in the Night (ég er 80's unglingur), en Rumours er á leiðinni á fóninn.
Plastpoki frá Discoteca al Pantheon og plötuumslög Una Storia Importante, Rumours og Tango in the Night.
Plötur 3, 4 og 5. Já ég ákvað að telja ekki með þær sem ég hef fengið á nytjamörkuðum. Una Storia Importante með Eros Ramazotti og Rumours og Tango in the Night með Fleetwood Mac. Allar keyptar í Discoteca al Pantheon í Róm núna um helgina.
Ég fór alltaf á Jensens bøfhus en ég held að það sé búið að loka því núna. Pincho Nation var skemmtilega öðruvísi staður.
www.ruv.is/frettir/innl...
Síðast þegar ég vissi voru Siglufjörður og Seyðisfjörður í sama kjördæmi. Reyndar sama kjördæmi og þessi gæi er úr. Þekkir hann ekki sitt eigið kjördæmi?
It's project based. You have to fill out an application outlining your project and if it is accepted you can get a 3 to 12 month salary to work on the project.
Ég veit, þetta eru bara hugrenningatengslin sem myndast hjá mér þegar ég heyri orðið fangi.
Hva, ekkert kílómetragjald ef bíllinn stendur kjurr.
www.ruv.is/frettir/innl...
Bíddu, og launin kannski líka? Það er búið að taka af okkur lífeyrisréttindin sem við höfðum umfram almenna. Lægri laun voru alltaf réttlætt með meiri réttindum, nú er sú réttlæting að hálfu horfin og minnkar enn ef áminningarkerfið verður afnumið.
Mér finnst bara ef orðið fangi er í orðinu eins og það hljóti að vera búið að dæma fólk fyrir einhvern glæp, ekki bara loka það inni fyrir það eitt að vera til.
Það er eitthvað súrrealískt við að það sé bara búið að koma upp einangrunarstöðvum (concentration camp) í Bandaríkjunum og Viðreisn sé að fara að gera það sama á Íslandi.